
Dreifðu kostnaðinum með Raðgreiðslum SaltPay
Hvort sem þú kaupir á netinu eða í verslunum þá getur þú dreift kostnaðinum í allt að 36 mánuði með Raðgreiðslum SaltPay.


Þekktu þína raðgreiðsluheimild
Þú getur skráð þig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum og séð þína raðgreiðsluheimild, fengið yfirlit yfir þínar raðgreiðslur hjá SaltPay.
Einnig er hægt að greiða inn á lánið og fylgjast með lánunum lækka frá mánuði til mánaðar.
Raðgreiðslur á netinu
Sífellt fleiri nýta sér þann möguleika að versla í gegnum netið. Raðgreiðslur SaltPay eru líka í boði þegar verslað er í vefverslun og það er einfalt að nýta sér þær.
Hvernig geri ég raðgreiðslur á netinu?
Þegar kemur að greiðslumöguleika er valið "Raðgreiðslur SaltPay". Þá opnast raðgreiðslusíða SaltPay.
Ferlið er einfalt, fljótlegt og ekki skemmir fyrir að það er pappírslaust.

Dæmi um fyrirtæki sem bjóða
upp á Raðgreiðslur SaltPay



.png)

Verðskrá fyrir Raðgreiðslur
Gildir frá 15. ágúst 2022
Almennir vextir | 12,90% |
- Fyrirtæki getur bætt við 2-4% álagi | |
Dráttarvextir | 11,50% |
- Skv. Seðlabanka Íslands |
Önnur gjöld
Raðgreiðslur | |
- Lántökugjald | 3,5% |
- Uppgjörsgjald | 405 kr. |
- Seðilgjald | 290 kr. |
- Tilkynning um vanskil | 950 kr. |