Mikið úrval af posum
Posarnir okkar eru einfaldir í notkun og taka við snertilausum greiðslum.
Við erum með gott úrval af posum, þráðlausa, tengda við net og posa fyrir kassakerfi. Hægt er að greiða með Apple Pay í öllum snertilausum posum SaltPay.
- Ef þú þarft aðeins að taka við greiðslum í erlendri mynt en ekki íslenskum krónum þá hentar myntval þér.
- Þarftu að leigja posa til skemmri tíma? Skammtíma posaleiga er í boði fyrir alla posa en alltaf þarf að ganga frá þjónustusamningi.
Svona virkar ferlið:
Fyrsta sem þarf að gera er að finna posa við hæfi og fylla út umsókn um posa. Þú getur skoðað úrvalið okkar neðar á síðunni. Ef þú ert þegar með posa og vantar fleiri getur þú sótt um auka posa.
Við sjáum um að setja posann upp fyrir þig og þú getur sótt hann til okkar samdægurs eða daginn eftir. Einnig er hægt að fá posa sendan samdægurs eða daginn eftir á höfuðborgarsvæðinu. Sendingartími er 2-3 dagar á landsbyggðinni. SaltPay rukkar engan sendingarkostnað.
Posi er tilbúinn til notkunar um leið og þú kveikir á honum og hann tengist neti.
Myntval
Með Myntvali getur þú boðið erlendum viðskiptavinum að greiða fyrir vöru eða þjónustu í eigin gjaldmiðli. Posinn skynjar hvort kortið er erlent og býður þá korthafa val um að greiða í eigin gjaldmiðli eða íslenskum krónum. Ekki er heimilt að taka þessa ákvörðun fyrir viðskiptavin.
Korthafinn losnar við gengisáhættu vegna viðskiptanna og getur eftir sem áður nýtt sér Tax Free.
Með því að bjóða viðskiptavini þínum að greiða í sínum gjaldmiðli færð þú þóknun af viðskiptunum.
.png)
Lægri þjónustugjöld vegna kreditkorta
.png)
Betri þjónusta við erlenda ferðamenn
.png)
Uppgjörsmynt fyrirtækis breytist ekki
.png)
Betri yfirsýn yfir erlenda veltu
Ekki er þörf á sérstökum posa og búnaðurinn er settur upp þér að kostnaðarlausu. Korthafi losnar við gengisáhættu en greiðir þóknun fyrir færsluna.
Örugg kortaviðskipti
Fyrirtæki sem meðhöndla kortaupplýsingar þurfa að uppfylla staðal alþjóðlegu kortafélaganna sem nefnist PCI DSS.
Lykilatriði við innleiðingu PCI DSS er annars vegar að geyma ekki greiðslukortaupplýsingar nema brýn þörf sé á því og hins vegar að vernda þær upplýsingar sem þörf er á að geyma. SaltPay býður upp á lausnir sem aðstoða fyrirtæki við að uppfylla kröfur PCI DSS staðalsins.
Mismunandi kröfur gilda um fyrirtæki eftir því í hvaða PCI DSS flokki þau eru, en flokkurinn byggir m.a. á magni og eðli viðskipta.
Ávinningur fyrirtækis að innleiða PCI DSS öryggisstaðalinn er m.a.:

Verndun kortaupplýsinga

Traust viðskiptavina

Minnkar áhættu á misnotkun
PCI DSS er skammstöfun á Payment Card Industry Data Security Standard
