Um SaltPay
SaltPay er leiðandi fjártæknifyrirtæki í þróun og hagnýtingu lausna á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar.
SaltPay hefur sérhæft sig í öruggri greiðslumiðlun í 35 ár og hefur vottun samkvæmt ISO/IEC 27001 staðli um upplýsingaöryggi. Með vottuninni er tryggt að hjá okkur sé farið að ítarlegum kröfum um öryggi upplýsinga, aðgangsstjórnun og meðhöndlun gagna, og að unnið sé eftir skráðum ferlum.
SaltPay er PCI SSC Participating Organization, sem þýðir að SaltPay tekur beinan þátt í starfi alþjóðlega PCI ráðsins við mótun PCI DSS staðalsins. Öryggisstjóri SaltPay er alþjóðlega vottaður PCI Internal Security Assessor.
SaltPay býður viðskiptavinum sínum færsluhirðingu vegna Mastercard, Maestro, Visa, Visa Electron, UnionPay, JCB, Diners, Discover og American Express
SaltPay er til húsa að Katrínartúni 4. á 2. hæð, 105. Reykjavík.