Viðskiptaskilmálar Sparikorts Bónus


 1.Skilgreiningar, útgáfa korts, gildistími
1.1.Eftirfarandi hugtök í skilmálum þessum eru skilgreind á þennan hátt: 

        Reikningshafi: Sá sem gert hefur samning um stofnun kortareiknings

        Korthafi: Reikningshafi eða annar sá sem reikningshafi heimilar að hafi kort sem gefið er út á kortareikning hans.

        Útgefandi: SaltPay hf. 

1.2.Sparikortið er gefið út af SaltPay hf. til tveggja ára í senn og stofnast þá kortareikningur. Sparikortin eru eingöngu ætluð til notkunar í verslunum í Bónus, samkvæmt ákvæðum viðskiptaskilmála þessara, notkunarheimildum og reglum um kortið eins og þær eru á hverjum tíma. Standi korthafi við skuldbindingar sínar er kort hans endurnýjað, án umsóknar.

1.3.SaltPay hf. áskilur sér rétt til að leita allra upplýsinga um getu umsækjanda og fjárhag, sem nauðsynlegar eru að mati útgefanda til að afgreiða umsókn, þar á meðal upplýsingar frá Creditinfo Lánstrausti hf., s.s. áhættumat, upplýsingar úr vanskilaskrá og öðrum gagnagrunnum sem félagið rekur.

1.4.Unnt er að fá útgefið handhafakort á fyrirtæki eða aukakort á sama reikning með samþykki reikningshafa. Viðskiptaskilmálar þessir gilda einnig fyrir handhafa slíkra korta.

1.5.Öll Sparikort skráð á einstaklinga eru með mynd af korthafa, nema handhafakort. Korthafi þarf að leggja fram mynd sem varðveitt er í gagnagrunni Reiknistofa bankanna (RB), sé mynd ekki þar til staðar.


 2.Samþykki
2.1.Áður en umsækjandi um Sparikort undirritar umsóknina, ber honum að kynna sér vandlega viðskiptaskilmála þessa. Með undirritun umsóknar um Sparikort og / eða fyrstu notkun kortsins samþykkir korthafi að fara eftir reglum og skilmálum um notkun kortsins sem og skilmálum gildandi gjaldskrár á hverjum tíma.


 3.Þjónustugjöld/gjaldskrá
3.1.Við útgáfu Sparikorts í fyrsta sinn greiðir korthafi sérstakt stofngjald, fullt gjald vegna aðalkorts en hálft vegna aukakorts.

3.2.Vegna endurútgáfu glataðs korts greiðist hálft stofngjald aðalkorts, hvort sem um er að ræða aðalkort eða aukakort.

3.3.Vegna notkunar kortsins greiðir korthafi færslugjöld skv. gjaldskrá. SaltPay hf. færir færslugjöld á mánaðarlegan kortareikning korthafa.

3.4.Útskriftargjald er innheimt af SaltPay hf. fyrir útsenda gíro- og skuldfærsluseðla.


 4.Almenn notkun kortsins
4.1.Korthafi skal rita nafn sitt á kortið við móttöku og hefur einn heimild til notkunar þess.

4.2.Korthafi skuldbindur sig til að fara ekki umfram heimiluð úttektarmörk sín á hverjum tíma.

4.3.Sparikort er einungis heimilt að nota með lestri upplýsinga af segulrönd þess á rafrænan hátt. Óheimilt er að gefa upp númer kortsins til greiðslu án rafrænnar notkunar þess hjá Bónus. Kortið gildir því ekki til greiðslu símleiðis eða bréflega.

4.4.Korthafi skuldbindur sig til að varðveita kortið þannig að óviðkomandi aðili geti ekki komist yfir það, enda ber honum að gæta þess á sama örugga hátt og peninga, tékka eða annarra verðmæta.


 5.Kortaviðskipti og greiðsluskil
5.1.Almennt úttektartímabil er frá 22. degi mánaðar til 21. dags næsta mánaðar að báðum dögum meðtöldum eða frá 1. degi mánaðar til 31. dags mánaðar.  

5.2.Korthafi skuldbindur sig til að greiða að fullu allar þær úttektir af kortareikningi sínum sem gerðar eru með kortum sem löglega hafa verið gefin út á reikninginn. Skuldbindingin tekur til allra úttekta samkvæmt úttektarseðlum sem korthafi hefur áritað.

5.3.Aukakorthafi ber ábyrgð á greiðslu úttekta sinna á kortareikningnum til jafns á við aðalkorthafa. Aðalkorthafi / reikningshafi ber ábyrgð á úttektum á aðal- og aukakortum. 


 6.Eindagi greiðslna
6.1.SaltPay hf. sendir korthöfum mánaðarlega reikningsyfirlit. Eindagi greiðslna er 2. dagur hvers mánaðar eftir að úttektartímabili lauk.

6.2.Hafi greiðsla ekki borist SaltPay hf. á eindaga leggjast vanskilavextir á skuldina, eins og þeir eru auglýstir af Seðlabanka Íslands hverju sinni, af úttektum frá eindaga til greiðsludags. SaltPay hf. áskilur sér rétt til að loka fyrir frekari viðskipti með kortið, þar til gjaldfallin skuld á kortinu hefur verið að greidd að fullu. Hafi skuld ekki verið greidd 60 dögum eftir eindaga, verður Sparikortið afturkallað og lögfræðingi falin skuldin til innheimtu á kostnað korthafa.

6.3.Ef svo hefur verið um samið að skuldfæra skuli af reikningi korthafa vegna skuldar og ekki reynist vera næg innistæða á skuldfærslureikningi á skuldfærsludegi, verður reynt áfram að skuldfæra vegna skuldar til 6. dags mánaðar.


 7.Ábyrgð á færslum
7.1.SaltPay hf. tekur ekki ábyrgð á gallaðri vöru sem tekin er út á Sparikort. Kvörtunum vegna slíks skal beina til viðkomandi seljanda. 

7.2.Ef korthafi eða reikningshafi hefur athugasemd við færslu á kortareikning, skal hann gera skriflega og undirritaða athugasemd hjá útgefanda innan 10 daga frá eindaga greiðslu. Eftir 30 daga frá skiladegi færslu samkvæmt yfirliti er útgefanda ekki skylt að taka athugasemd til meðferðar. 

7.3.Telji korthafi að kort hans hafi verið notað með sviksamlegum hætti ber honum að tilkynna það án tafar til útgefanda. Í öllum tilvikum þegar grunur um sviksamlega kortanotkun er að ræða ber útgefanda að loka korti og korthafa að afhenda kortið til útgefanda. Korthafi ber ekki tjón vegna úttekta sem hann á ekki sannarlega aðild að. Korthafa ber skylda til að aðstoða útgefanda við vinnslu málsins og lágmarka tjónið eins og kostur er. 

7.4.Þrátt fyrir ákvæði 7.1 og 7.2 hefur korthafi lengst 13 mánuði til að gera athugasemdir við færslur á kortareikning, enda geti korthafi sýnt fram á að útgefandi hafi ekki uppfyllt ákvæði skilmála þessara um birtingu reikningsyfirlits eða að ómögulegt hafi verið að hafa uppi athugasemdir innan áðurnefndra tímamarka. 

7.5.Útgefandi tekur ekki ábyrgð á gallaðri vöru eða þjónustu sem greitt er fyrir með Sparikorti, né heldur á nokkrum öðrum vanefndum seljanda vöru eða þjónustu sem greitt er fyrir með Sparikorti. Kvörtunum út af slíku skal korthafi beina til viðkomandi seljanda. 

7.6.Útgefandi ber ekki ábyrgð á því ef móttöku kortsins er synjað um greiðslu hjá seljanda, né því tjóni sem leitt getur af því. 


 8.Tryggingar
8.1.Reikningshafi skal leggja fram tryggingar fyrir úttektum sem útgefandi metur fullnægjandi.  Ef ekki er orðið við beiðninni getur útgefandi lækkað úttektarheimild eða sagt upp viðskiptum


 9.Innköllun / Uppsögn
9.1.Sparikortið er eign SaltPay hf. og má innkalla það og/eða loka því án fyrirvara, komi til misnotkunar eða vanskila hjá korthafa.

9.2.Útgefanda er heimilt að loka fyrirvaralaust öllum kortum korthafa í eftirfarandi tilvikum: 

        a)Ef korthafi eða handhafi korts vanefnir skyldur sínar samkvæmt skilmálum þessum. 

        b)Ef fjárnám er gert hjá korthafa eða ábyrgðarmanni, fram komi ósk um gjaldþrotaskipti á búi þeirra eða leiti þeir nauðasamninga. 

        c)Ef vanskil verða af hálfu korthafa á greiðslum gjaldfallinna krafna vegna notkunar korts eða útgefandi þarf að afskrifa ógreiddar kröfur. 

9.3.Innkalli SaltPay hf. Sparikortið skal korthafi tafarlaust klippa kortið og senda til SaltPay  hf. Aldrei má taka út á kort sem innkallað hefur verið af SaltPay hf. Bónus hefur fulla heimild til að taka í sína vörslu innkallað Sparikort.

9.4.Óheimilt er að nota Sparikort eftir að gildistími þess er útrunninn eða það hefur verið ógilt. Misnotkun kortsins varðar við lög m.a. 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. 

9.5.Vilji korthafi segja upp viðskiptum sínum skal það gert skriflega a.m.k. einum mánuði fyrir lok gildistíma kortsins. Berist uppsögn síðar skal korthafi greiða gjald vegna útgáfu nýs korts. Korthafi skal skila kortinu sundurklipptu til SaltPay hf.

9.6.SaltPay getur sagt upp viðskiptum við korthafa með mánaðar fyrirvara. 


 10.Glatað kort
10.1.Ef Sparikort glatast skal korthafi tafarlaust tilkynna það til SaltPay hf. Sé tilkynnt símleiðis um tap á korti skal staðfesta slíka tilkynningu skriflega innan 3ja virkra daga á eyðublaði hjá SaltPay hf. Eftir það getur korthafi fengið útgefið nýtt kort gegn greiðslu endurútgáfugjalds.

10.2.Korthafi skal þar til tilkynning hans berst útgefanda, bera það tjón sem hann hefur orðið fyrir vegna taps, þjófnaðar, eða fölsunar á kortinu, en þó ekki vegna fjárhæðar hærri en sem nemur 150 evrum í hverju tjónstilviki, nema ef um hefur verið að ræða stórfellt gáleysi eða svik af hans hálfu.

10.3.Óheimilt er að nota Sparikort eftir að það hefur verið tilkynnt glatað. Slíkt kort skal senda sundurklippt til SaltPay hf.


 11.Persónuvernd
11.1.Í tölvukerfi SaltPay hf. verða upplýsingar um korthafa, aukakorthafa og ábyrgðar-menn. Upplýsingar sem hér um ræðir eru m.a. kennitala, heimilisfang og aðrar þær upplýsingar sem aðilar hafa veitt útgefanda með útfyllingu eyðublaða og forma útgefanda. 

11.2.Allar upplýsingar um kortareikninga og notkun korta eru vistaðar í tölvukerfi SaltPay hf. 

11.3.Vinnsla og geymsla upplýsinga skal vera í samræmi við það sem nauðsynlegt er til starfrækslu greiðslumiðlunar. SaltPay hf. mun auk þess gæta þess að vinnsla og vistun persónu¬upp¬lýsinga sé ætíð í samræmi við gildandi lög og reglur.

11.4.Ábyrgðaraðili vinnslu er SaltPay hf.


 12.Ýmsir skilmálar
12.1.Korthafi skal tafarlaust tilkynna SaltPay hf. verði breyting á heimilisfangi og/eða netfangi hans/þeirra til að tryggja að yfirlit og aðrar upplýsingar geti borist honum með eðlilegum hætti. 

12.2.SaltPay hf. áskilur sér allan rétt til breytinga á skilmálum þessum. Breytingar skulu tilkynntar korthafa ekki síðar en 15 dögum áður en breyttir skilmálar taka gildi. Í tilkynningu um breytta skilmála skal taka fram í hverju breytingarnar felast og á rétti korthafa til að slíta viðskiptum. Sé Sparikort notað eftir að breyttir skilmálar taka gildi telst korthafi samþykkur breytingunni. Birting nýrra viðskiptaskilmála á vefsíðu SaltPay hf. telst nægileg tilkynning samkvæmt framansögðu.

12.3.Fallist korthafi ekki á breytta viðskiptaskilmála, getur hann slitið viðskiptum með því að klippa í sundur Sparikortið og senda það sundurklippt til SaltPay hf.


 13.Lög og ágreiningsmál
13.1.Um túlkun viðskiptaskilmála þessara, sem og úrlausn mála sem upp kunna að rísa vegna notkunar Sparikortsins skal fara eftir íslenskum lögum. 

13.2.Kröfumál gegn korthafa vegna viðskipta hans með Sparikortið, má reka gegn honum í því landi þar sem hann telst hafa fasta búsetu hverju sinni, skv. 2. mgr. 1.gr. l. nr. 21/1990 um lögheimili.

13.3.Mál sem rísa vegna brota á skilmálum þessum skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.


Skilmálar þessir tóku í gildi þann 3. apríl 2015 

FÁ TILBOÐ Í VIÐSKIPTI

Þessi vefsíða styðst við vafrakökur

SaltPay notar vefkökur m.a. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Nánari upplýsingar um vefkökunotkun